Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Íþróttir

Njarðvík | Guðbjartur Halldór nýr styrktarþjálfari karla
Laugardagur 7. mars 2026 kl. 07:56

Njarðvík | Guðbjartur Halldór nýr styrktarþjálfari karla

Breytingar hafa orðið á þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Njarðvík. Guðbjartur Halldór Ólafsson hefur verið ráðinn styrktarþjálfari liðsins og tekur hann við af Jóni Aðalgeiri Ólafssyni.

Guðbjartur er menntaður íþróttafræðingur frá Háskólanum á Íslandi og þekkir vel til hjá Njarðvík, en hann lék með liðinu á árunum 2000–2003.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hann býr yfir víðtækri reynslu af þjálfun og styrktarþjálfun. Hann hefur áður starfað sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR og meistaraflokks karla hjá Létti, auk þess að hafa verið í þjálfarateymum hjá Leikni Reykjavík og HK á síðustu árum.

Fráfarandi styrktarþjálfara, Jóni Aðalgeiri, eru færðar þakkir fyrir störf sín hjá félaginu síðustu mánuði en hann hverfur nú til annarra verkefna, segir í tilkynningu frá Njarðvík.